Fréttir
Svali kveður
09/11/2022
Fréttir
09/11/2022
Svali hefur verið vinsæll svaladrykkur hér á landi í yfir fjörutíu ár en vegna breytinga á smekk og þörfum neytenda hefur verið ákveðið að hætta framleiðslu og sölu á Svala við árslok.
„Við höfum átt farsæla áratugi í fylgd Svala en hann er engu að síður barn síns tíma og við erum á annarri vegferð í dag. Kröfur neytenda og smekkur fólks þróast í sífellu og samhliða því þurfum við að fara yfir árangur og stöðu vörumerkja okkar reglulega,“ segir Einar Snorri Magnússon, forstjóri Coca-Cola á Íslandi.
Einar segir að að undanförnu hafi mikil vinna verið lögð í að endurmóta vöruframboð The Coca-Cola Company á heimsvísu, og er það stefna fyrirtækisins að beina kröftum sínum að þeim vörumerkjum sem eru hvað vinsælust. „Með þessari stefnu styrkjum við þau vörumerki sem eru eftir, sköpum rými fyrir nýsköpun og erum betur í stakk búin til að bregðast við þörfum viðskiptavinanna.
Við kveðjum því Svala að svo búnu og þökkum honum samfylgdina!“